Stóri-Ás Borgarfirði
Sónað frá Trompet, Takti og TrymbliÍ gær var sónað frá stóðhestunum sem voru hér í girðingu í sumar. Það eru bræðurnir Trompet, Taktur og Trymbill, Nótusynir.
Tólf hryssur voru sónaðar í allt, og voru 10 þeirra fengnar svo árangurinn var bara góður. Einungis tvær hryssur sem báðar eru komnar yfir tvítugt héldu ekki, en þær fá að njóta helgarinnar með Trymbli áður en hann fer heim í Skagafjörðinn. Stóðhestar sýndirÍ síðustu viku sýndi Gísli Gíslason 3 stóðhesta á Vindheimamelum úr okkar ræktun.
Það voru bræðurnir Trymbill 6 vetra og Taktur 5 vetra og Tenór 6 vetra. Trymbill er 6 vetra Nótusonur og Þokka frá Kýrholti. Hann er mikil hæfileikasprengja, flugviljugur og rúmur, enda fékk hann 8,71 fyrir hæfileika en 7,79 fyrir byggingu. Í aðaleinkunn fékk hann 8,34 og er því kominn inn á landsmót. ![]() ![]() Tenór er klárhestur undan Flautu okkar og Hágangi frá Narfastöðum. Hann hlaut 8,23 fyrir hæfileika, þar af fjórar níur, fyrir tölt, brokk, vilja og geðslag og fegurð í reið. Fyrir byggingu fékk hann 7,93 og í aðaleinkunn 8,11. ![]() Taktur er 5 vetra Nótusonur og Bjarma frá Lundum. Hann fékk 8,41 fyrir sköpulag enda mjög fallegur. Hann var hins vegar ekki í sýni besta formi í brautinni og lækkaði í hæfileikadómi. Múkk hefur aðeins verið að hrjá hann að undanförnu, en stefnt er að því að sýna hann aftur á Akureyri á morgun. Systir hans 4 vetra Hending frá Stóra-Ási fer einnig í dóm á Akureyri. Það er mjög efnileg hryssa undan Nótu og Aðli frá Nýja-Bæ. ![]() Útskrift Höskuldar
Nóta köstuðNóta kastaði í gærmorgun. Þar fæddist annar rauður hestur, með stjörnu og nokkur hár á nösinni líka. Hann er undan Straumi frá Breiðholti, Hrynjandasyni, sem illu heilli drapst í fyrra. Nóta losnaði ekki við fylgjuna svo við urðum að fá Eddu dýralækni til að aðstoða við það í gærkvöldi. Nú heilsast öllum vel. ![]() ![]() Síðast uppfært (Fimmtudagur, 12. Maí 2011 15:22) |











